Þróunarfélag Austurlands (e. The Development Centre of East Iceland) var stofnað árið 1983 og starfar að framþróun í atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun á Austurlandi. Meðal helstu hlutverka Þróunarfélags Austurlands er að efla atvinnulíf og samfélag á Austurlandi, veita ráðgjöf við nýsköpun- og þróunarverkefni auk þess að veita ráðgjöf um bættan rekstur. Félagið hefur tekið þátt í fjölda verkefna á landsvísu sem og alþjóðlegum verkefnum sem ætlað er að styðja og styrkja við atvinnulífið á Austurlandi.
Hvað gerir ÞFA?
Þróunarfélag Austurlands er hluti af svokölluðu stoðkerfi Austurlands. Þetta þýðir einfaldlega að við erum hér til að styðja frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref í stofnun fyrirtækja og til að styðja fyrirtæki og sveitarfélög í hverskonar þróunarvinnu innan þeirra. Okkar markmið eru efling samfélagsins og atvinnuuppbygging.
Sem dæmi um verkefni sem starfsfólk ÞFA hefur verið að vinna að eru stofnun: Kyndistöðvar á Hallormsstað, væntanleg Álkaplaverksmiðja á Seyðisfirði og Jarðfræðisetur á Breiðdalsvík. Auk þessara verkefna er ÞFA umsjónaraðili Vaxtarsamnings Austurlands, hefur unnið að ESB-verkefnum tengdum samfélagsþróun á Austurlandi og veitt frumkvöðlum á Austurlandi þjónustu og ráðgjöf með sín fyrstu skref í viðskiptaheiminum.
Félagið hefur verið víðtækt í atvinnuþróun og stuðningi við bæði frumkvöðla og starfandi fyrirtæki.Nú sinnir það einnig ýmsum samfélagslegum verkefnum öllu Austurlandi til góða. Slíkum verkefnum er ætlað að treysta samkeppnishæfni landshlutans gagnvart búsetu og laða að það fólk sem atvinnulífið þarf á að halda.
Viðvera - Viðtalstímar
Þróunarfélagið hefur haft þann sið í hávegum að vera með svokallað viðveru eða viðtalstíma í þéttbýliskjörnum Austurlands. Hafa þessir viðverutímar gjarnan verið auglýstir á heimasíðu félagsins – austur.is sem og á facebook síðu þess. Viðtökur hafa verið misgóðar allt frá því að enginn mæti og upp í að tíminn sé fullnýttur af fólki með góðar hugmyndir og kjark til að framkvæma þær.
ÞFA hvetur alla frumkvöðla til að nýta sér þessa að þjónustu í heimabyggð og auðvelda sér þannig fyrstu skrefin í átt að fyrirmynda fyrirtæki. Hægt er að panta viðtal við starfsfólk Þróunarfélagins á opnunartíma félagsins.
Opnunartími: 08:00-16:00
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.




































