Markaðsstofa Austurlands er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 7. febrúar 1999 af sveitarfélögum á Austurlandi og ferðaþjónustuaðilum. Starfssvæðið nær frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogshrepps í suðri, auk þess nær svæðið til hálendisins norðan Vatnajökuls og Möðrudals. Henni er ætlað að kynna og markaðssetja Austurland sem eina heild.
Starfssvið Markaðsstofu Austurlands er í dag þríþætt: að sinna upplýsingagjöf, markaðssetningu og þróunarstarfi auk þess að hafa umsjón með viðburðum í fjórðungnum.
1. Upplýsingamiðlun
Markaðsstofan rekur landhlutamiðstöðin á Egilsstöðum sem er opin allt árið. Markaðsstofa Austurlands er rekstraraðili upplýsingamiðstöðvarinnar og er rekstur hennar aðskilinn í bókhaldi félagsins. Samstarfsaðilar um upplýsingamiðstöðina eru Ferðamálastofa og Fljótsdalshérað (sem heimasveitarfélag). Þessi aðilar eiga allir sæti í sérstöku fagráði um rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar.
Upplýsingamiðstöðin er landshlutamiðstöð fyrir Austurland. Hlutverk hennar er tvíþætt;
1. Upplýsingamiðlun: Að taka við og miðla upplýsingum og kynningarefni til ferðamanna og ferðaþjónustuaðila á Austurlandi.
2. Upplýsingadreifing: Að taka við og dreifa kynningarefni af Austurlandi til annarra landshlutamiðstöðva, svæðismiðstöðva og innlendra sem erlendra söluaðila
- Að leitast við að gera dvöl ferðamanna sem ánægjulegasta og hvetja þá til að kynna sér möguleika fyrir ferðamenn á Austurlandi (með von um að lengja dvöl þeirra)
- Að veita sem bestar upplýsingar um þjónustu á svæðinu og svæðið sjálft.
- Að svara almennum fyrirspurnum um landið í heild og viðkomandi svæði eða vísa fyrirspurnum til réttra aðila.
- Að dreifa bæklingum til ferðamanna og til annarra upplýsingamiðstöðva, auk þess að vera öðrum upplýsingamiðstöðvum á svæðinu til stuðnings um gögn, upplýsingagjöf og þjálfun starfsfólks.
- Að gefa ferðaþjónustuaðilum á markaðssvæðinu kost á að kynna starfsemi sína í húsnæði upplýsingamiðstöðvarinnar í þar til gerðum bæklingarekkum.
- Að skrá upplýsingar um þá aðila sem til upplýsingamiðstöðvarinnar leita.
2. Markaðssetning og þróunarstarf
Markaðssetningin skiptist í eftirfarandi þætti:
- Kynning á ferðaþjónustu á starfssvæði Markaðsstofu Austurlands í ræðu og riti;
- Þátttaka á kaupstefnum og ferðamálasýningum innanlands og jafnvel erlendis;
- Útgáfa á ímyndar- og upplýsingaritum um Austurland;
- Skipulagning auglýsingaherferða og samræming á útgefnu upplýsingaefni.
- Markaðssetning viðburða
- Að reka upplýsingavef um Austurland fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn og helst með bókunarkerfi
Þróunarstarfið skiptist í eftirfarandi þætti:
- Að veita ferðaþjónustuaðilum og sveitarfélögum ráðgjöf og leiðbeiningar
- Að stuðla að auknum gæðum í ferðaþjónustu á svæðinu m.a með fræðslu
- Að efla samstarf og samvinnu ferðaþjónustuaðila meðal annars með sameiginlegri markaðssetningu viðburða svo sem Páskafjörs, Daga myrkurs og Jóla á Austurlandi
- Að stýra stefnumótum og framkvæmdaáætlun í ferðamálum
- Að ýta undir nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu.
- Að standa fyrir fræðslu, námskeiðum og málþingum fyrir ferðaþjónustuaðila
- Að stuðla að söfnun upplýsinga og reka gagnagrunn yfir ferðaþjónustuaðila og framboð
- Að sinna rannsóknum og könnunum á ferðaþjónustu á Austurlandi
- Að leita eftir auknu fjármagni í atvinnugreinina og sameiginleg verkefni
- Að vinna með öðrum í stoðkerfinu við eflingu ferðaþjónustunnar.




























