Austurbrú er sjálfseignarstofnun stofnuð á grunni Þekkingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Stofnunin verður með fimm starfsstöðvar á Austurlandi og yfir 20 starfsmenn. Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Austurlandi og veita samræmda og þverfaglega þjónustu tengda atvinnulífi, menntun og menningu. Stofnunin verður í forsvari fyrir þróun atvinnulífs, samfélags, stjórnsýslu, háskólanáms, símenntunar, rannsókna, þekkingar- og menningarstarfs á Austurlandi.
Stofnfundur Austurbrúar
Ríkisstjórn Íslands mætti á stofnfund sameinaðrar stoðstofnunar á Austurlandi sem fékk nafnið Austurbrú. Fram kom í ávarpi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur að með stofnun Austurbrúar væri stigið mikið framfaraskref í landshlutanum með sameiningu á þjónustu tengdri byggða- og atvinnuþróun, menntun, rannsóknum, menningu og málefnum ferðaþjónustunnar. Jóhanna taldi að stofnun Austurbrúar gæti orðið öðrum landshlutum fyrirmynd. Með slíkri stofnun væri kominn upp vettvangur fyrir sameiginlega stefnumótun og vettvangur fyrir bein samskipti og samstarf landshluta við ríkisvaldið. Samstarfi sem gæti gefið af sér tilflutning verkefna, aukið frumkvæði og sjálfræði, samanber Sóknaráætlun landshlutanna 20/20.

Stofnfundur Austurbrúar var haldinn í gær, 8.maí 2012 á Reyðarfirði. Undirbúningur að þessari sameiningu hefur átti sér stað í tveimur áföngum. Fyrri áfanga lauk með skýrslu vinnuhóps Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) „Endurskoðun á stoðkerfi atvinnulífs, menntunar og menningar á Austurlandi“, seinni áfanginn hófst haustið 2011 með skipan verkefnisstjórnar sem vann að sameiningunni. Stefanía G. Kristinsdóttir var ráðinn verkefnisstjóri.
Í verkefnisstjórn sátu:
- Valdimar O. Hermannsson, formaður stjórnar SSA og verkefnisstjórnar,
- Stefán Bogi Sveinsson, varaformaður stjórnar SSA,
- Arnbjörg Sveinsdóttir, úr stjórn SSA,
- Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs-Starfsgreinafélags - tilnefndur af ÞNA,
- Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands – tilnefndur af ÞNA,
- Auður Anna Ingólfsdóttir, hótelstýra á Hótel Héraði – tilnefnd af ÞFA
- Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar – tilnefndur af MA
- Kristján Ingimarsson, tilnefndur af MRA
Yfir 30 stofnaðilar eru að Austurbrú, sjá skipulagsskrá, þar á meðal eru öll sveitarfélögin á Austurlandi, allir háskólar landsins, helstu fagstofnanir, stéttarfélög og hagsmunasamtök atvinnulífsins, framhaldsskólar og þekkingarsetur á Austurlandi.
Verkefnisstjórn lítur svo á að þetta sé fyrsti áfanginn í endurskoðun á stofnanaumhverfi landshlutans og horft er til þess að fleiri verkefni muni renna inn í sameinaða stofnun í framtíðinni frá ríki og sveitarfélögum.
Á stofnfundinum var kosið í stjórn og fagráð fyrir hina nýju stofnun, undirritaðir samningar við ríkisvaldið og fleiri aðila, sjá skipan í stjórn og fagráð.




































