Austurbrú ræður tvo nýja stjórnendur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Austurbrú ses., sem tók til starfa 1. júní sl. sem sameinuð stoðstofnun atvinnulífs, menningar og menntunar á Austurlandi, hefur ráðið tvo nýja stjórnendur. Alls bárust á þriðja tug umsókna um hvort starf.

Finnbogi Alfreðsson hefur verið ráðinn stjórnandi nýsköpunar og þróunar hjá Austurbrú. Finnbogi hefur meistaragráðu í verkefnastjórnun frá verkfræðideild HÍ og MBA gráðu í viðskiptum og stjórnun frá University of Edinburgh. Hann hefur langa reynslu af stjórnun fyrirtækja og verkefna, bæði sem framkvæmdastjóri og sem stjórnunar- og rekstrarráðgjafi. Finnbogi hefur einnig starfað fyrir Alþjóðabankann í Washington DC sem sérfræðingur á sjávarútvegssviði.

 Árný Björg Bergsdóttir hefur verið ráðin stjórnandi markaðsmála hjá Austurbrú. Árný hefur BA-gráðu í ferðamálafræði frá Fachhochschule Bad Honnef / Angell Akademie í Freiburg í Þýskalandi og BA-gráðu í þýsku frá HÍ. Árný hefur mikla reynslu af ferða-, markaðs- og menningarmálum bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Hún hefur m.a. starfað sem markaðsstjóri og deildarstjóri  hjá ferðaskrifstofunni Terra Nova, bæði á innanlands- og Þýskalandsmarkaði um árabil en frá 2009 hefur hún gegnt stöðu forstöðumanns Miðstöðvar menningarfræða á Austurlandi.

 Að sögn Þorkels Pálssonar, framkvæmdastjóra Austurbrúar, er mikill fengur fyrir hina nýju stofnun að fá þessa reynslumikla stjórnendur til að leiða verkefni á þessum sviðum. „Umsóknir voru margar og margir hæfir einstaklingar sem sóttu um en þessi tvo hafa bæði mjög góða menntun á sínu sviði og mikla reynslu. Þau hafa bæði reynslu af stjórnun flókinna verkefna og þekkingu á aðstæðum landsbyggðarinnar. Sú reynsla mun án efa nýtast Austurbrú og Austurlandi vel í þeim stóru verkefnum sem framundan eru.“

 
logo_asaust