Þorkell J. Pálsson, framkvæmdastjóri Austurbrúar ses., hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Þorkell tók til starfa í byrjun apríl sl. og hefur hann unnið að stofnun Austurbrúar og þeim breytingum sem fylgja sameiningu þeirra stoðstofnana sem nú mynda Austurbrú ses.
Samkomulag varð milli aðila um starfslok framkvæmdastjórans og hefur hann þegar lokið störfum. Stjórn Austurbrúar vill taka fram að Þorkell vann störf sín af kostgæfni og reyndist þekking hans og reynsla mikilvæg við að setja á stofn nýja sameinaða stoðstofnun sem tók formlega til starfa 1. júní sl.
Með stofnun Austurbrúar var starfsemi fimm stoðstofnana á Austurlandi sameinuð í eina stofnun með eina stjórn og framkvæmdastjóra auk fimmtán manna fagráðs. Slíkum breytingum fylgja jafnan flókin úrlausnarefni, ekki síst í starfsmannamálum. Stjórn Austurbrúar leggur áherslu á að viðhalda fullum trúnaði og trausti allra starfsmanna og hagsmunaaðila er tengjast stofnuninni og mun sjá til þess að sameiningin skili tilætluðum árangri. Flest hefur gengið eftir áætlun síðustu mánuði og stofnsetning Austurbrúar er afstaðin undir stjórn fráfarandi framkvæmdastjóra. En það var sameiginleg niðurstaða stjórnar og framkvæmdastjóra að rétt sé að nýr stjórnandi myndi leiða stofnunina næstu skrefin.
Áfram verður unnið af fullum krafti að uppbyggingu Austurbrúar og mun stjórn og starfsfólk skipta með sér verkum og ábyrgð þangað til aftur hefur verið ráðið í starf framkvæmdastjóra. Stjórn Austurbrúar þakkar Þorkeli fyrir hans aðkomu að upphafi Austurbrúar og tekur fram að starfslok hans eru gerð í fullu samkomulagi við hann og af þeim verða engir eftirmálar.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar Hermannsson, stjórnarformaður Austurbrúar ses., í síma 860-6770.