1. grein
Stofnunin heitir Markaðsstofa Austurlands, skammstafað MA. Heimili og varnarþing er á Seyðisfirði.
2. grein
Stofnfé MA er kr. 500.000 og má ekki skerða það að raungildi. Stofnféð kemur frá öllum sveitarfélögunum á svæðinu frá Breiðdal til Bakkafjarðar og ferðaþjónustufyrirtækjum á sama svæði en þessir aðilar eru jafnframt formlegir stofnendur MA.
3. grein
Tilgangur Markaðsstofunnar er:
• Að byggja upp öflugan gagnabanka um hvaðeina er lýtur að þjónustu við ferðamenn, upplýsingar um opinbera þjónustu, viðskipti, alls konar viðburði á sviði menningar, skemmtana og afþreyingar og aðra þá starfsemi sem ástæða er til að kynna og markaðssetja fyrir ferðamönnum, íbúum landshlutans og öðrum þeim sem leita eftir upplýsingum um landshlutann.
• Að starfrækja vandaða og skilvirka upplýsingastarfsemi um þá þætti sem segir frá í málsgreininni hér á undan
• Að samræma og vinna að heildstæðri markaðssetningu svæðisins.
4. grein
Stofnendur skipa 7 manna stjórn, þ.e. sveitarstjórnirnar 1 mann og ferðaþjónustufyrirtækin skipa 6 menn, þar á meðal formann. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórnarmenn skulu valdir til 2 ára í senn. Endurnýjun í stjórn getur farið fram árlega en aldrei skulu fleiri en 2 stjórnarmenn ganga úr stjórn hverju sinni. Stofnendur bera ábyrgð á endurnýjun fulltrúa sinna í stjórn. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri stofnunarinnar.
5. grein
Stofnunin er sjálfsábyrg og starfar ótímabundið. Hún birtir stofnendum árlega sína ársreikninga og skulu þeir endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum Þróunarstofu Austurlands á Egilsstöðum. Þróunarstofan hefur yfirumsjón og ber ábyrgð á fjárvörslu Markaðsstofunnar.
6. grein
Skipulagsskrá þessari verður ekki breytt nema atkvæði allra stjórnarmanna falli á þann veg, enda hljóti breytingin staðfestingu réttbærra yfirvalda.
7. grein
Komi til að stjórn sjálfseignarstofnunar þessarar ákveði að leggja hana niður og engin önnur verður stofnsett með sama hlutverki, skulu allar eigur hennar og skuldir renna til Þróunarstofu Austurlands. Stjórn Þróunarstofunnar ákveður um ráðstöfun þessara eigna og skulda.
8. grein
Leita skal staðfestingar Dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá þessari og hún síðan birt í Bdeild Stjórnartíðinda.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 18. maí 1999.




























