• An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow

east.is - ferðaþjónustuvefur

  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur
  • www.east.is - ferðaþjónustuvefur

Um Markaðsstofu Austurlands

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Markaðsstofa Austurlands - Austurbrú
Markaðsstofa Austurlands var stofnuð 7. febrúar 1999 af sveitarfélögum á Austurlandi og ferðaþjónustuaðilum.  Starfssvæðið nær frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogshrepps í suðri, auk þess nær svæðið til hálendisins norðan Vatnajökuls og Möðrudals.  Henni er ætlað að kynna og markaðssetja Austurland sem eina heild. Markaðsstofan starfar náið með öllum ferða- og menningarmálafulltrúum á Austurlandi, sveitarfélögunum, öðrum hagsmunaðilum en fyrst og fremst með á annað hundrað ferðaþjónustufyrirtækjum á Austurlandi.

Þann 1. júní 2012 rann starfsemi Markaðsstofu Austurlands inn í Austurbrú.ses

Austurbrú er sjálfseignarstofnun stofnuð á grunni Þekkingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Stofnunin er með sex starfsstöðvar á Austurlandi og yfir 20 starfsmenn. Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Austurlandi og veita samræmda og þverfaglega þjónustu tengda atvinnulífi, menntun og menningu. Stofnunin verður í forsvari fyrir þróun atvinnulífs, samfélags, stjórnsýslu, háskólanáms, símenntunar, rannsókna, þekkingar- og menningarstarfs á Austurlandi.

Helstu markmið á sviði markaðsmála:
1.    Að styrkja ímynd Austurlands í hugum ferðamanna.
2.    Að annast markaðssetningu og kynningu á Austurlandi sem áfangastað ferðamanna bæði innanlands og utan.
3.    Að kynna Austurland með öflugri heimasíðu,  útgáfu og dreifingu bæklinga.
4.    Að kynna möguleika fyrir ferðamenn með þátttöku í sýningum og öðru markaðsstarfi innanlands og utan í samstarfi við lykilaðila.
5.    Að annast stjórnun og markaðssetningu sameiginlegra viðburða.
6.    Að safna upplýsingum og halda utan um gagnagrunn um ferðaþjónustu á Austurlandi, vísa viðskiptum til ferðaþjónustuaðila eftir sérsviðum og geta mögulega boðið bókunarþjónustu fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
7.    Að samræma markaðsstarf í ferðaþjónustu á Austurlandi m.a. með liðsinni og ráðgjöf við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á svæðinu.
8.    Að vera leiðandi í stefnumótun í ferðamálum
9.    Að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar í ferðaþjónustu á svæðinu m.a með þátttöku í ýmsum samstarfsverkefnum
10.  Að veita aðilum Markaðsstofunar ráðgjöf við umsóknir í sjóði.
11.  Að hvetja til og standa fyrir námskeiðum fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu á ýmsum sviðum sem snerta innviði ferðaþjónustunnar.
12.  Að vera málssvari og vettvangur umræðu og samstarfs í ferðaþjónustu á Austurlandi.

Markaðsstofa Austurlands er opin alla virka daga frá kl. 9 - 17.

 

Ársfundur austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Við viljum bjóða alla áhugasama velkomna á opinn fund austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs í Snæfellsstofu,
sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl næstkomandi klukkan 14.

Á fundinum verður starfsemi stjórnar og austursvæðis kynnt ásamt framtíðarsýn austursvæðisins. Þar að auki verða kynntar niðurstöður af samráðsfundi um veiðar sem haldinn var í síðasta mánuði, helstu verkefni næsta árs og fræðsludagskrá sumarsins 2012.

Dagskrá
14:00 - 14:15 Fyrstu árin og næstu skref - Störf stjórnar. Björn Ármann Ólafsson formaður svæðisráðs austursvæðis
14:15 - 14:40 Ársskýrsla austursvæðis 2011 - Daglegur rekstur og framtíðarsýn. Agnes Brá Birgisdóttir þjóðgarðsvörður
14:40 - 14:50 Fræðsluskilti og Fræðsludagskrá 2012. Ragna Fanney Jóhannsdóttir aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar
14:50 - 15:10 Kynning á helstu atriðum frá samráðsfundi um veiðar sem haldinn var 17. mars s.l. Anges Brá Birgisdóttir þjóðgarðsvörður.
15:10 - 15:30 Umræður og spurningar.

Allir velkomnir

Við minnum á kaffihlaðborð Klausturskaffis í tilefni af sumardeginum fyrsta.

Karlakórinn Fóstbræður í Snæfellsstofu

Föstudaginn 20. apríl klukkan 13 mun Karlakórinn Fóstbræður taka nokkur valin lög í Snæfellsstofu sem einskonar upphitun fyrir tónleika sína í Egilsstaðakirkju síðar um kvöldið. Snæfellsstofa verður að þessu tilefni opin milli klukkan 10 og 15 þennan dag og viljum við hvetja austfirðinga til að heimsækja okkur og njóta ljúfra tóna. Sumaropnun Snæfellsstofu hefst svo 1. maí. 

Agnes Brá Birgisdóttir
Þjóðgarðsvörður/National Park Manager
Austursvæði/Eastern Territory Vatnajökull National Park
Skriðuklaustur, 701 Egilsstaðir, Iceland
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , Sími/tel +354 470 0841

 

Skýrsla framkvæmdastjóra vegna starfsársins 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Skýrsla framkvæmdastjóra 2011

 

Niðurstöður stefnumótunar "Ísland allt árið"

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fjallað var um niðurstöður úr stefnumótunarvinnu um "Ísland allt árið" á félagsfundi SAF þann 15. desember sl.

Glærur frá fundinum má finna hér; www.saf.is

 
Síða 1 af 3
logo_asaust

Markaðsstofa Austurlands / Austurbrú markaðssvið
Hafnargötu 28 
710 Seyðisfirði

Miðvangi 1 - 3
700 Egilsstöðum

Sími:  470 3860 

Markaðsstofa Austurlands- Miðvangi 1-3 - 700 Egilsstaðir - Sími: 470 3860 - Netfang: east@east.is