• An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow

Þekkingarnet Austurlands



Hlutverk og markmið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þekkingarnet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 13. júní 2006 á grunni Fræðslunets Austurlands sem stofnað var 30. október 1998. Starfssvæði er allt Austurland, frá Skeiðará í suðri að Langanesi í norðri. 
Meginmarkmið með starfi Þekkingarnets Austurlands er: að stuðla að fjölbreyttri uppbyggingu háskólanáms, símenntunar og rannsókna á Austurlandi, vera samstarfsvettvangur fyrir aðila er vinna að verkefnum á sviði rannsókna, háskóla- og símenntunar, fjölþjóðlegra samstarfsverkefna, nýsköpunar og þróunar.

Verkefni Þekkingarnets Austurlands:

  • ÞNA veitir upplýsingar um nám og tækni.
  • ÞNA miðlar háskólanámi, kynnir námið, þjónustar fjarnema og hefur umsjón með prófum.
  • ÞNA skipuleggur námskeið á fjölmörgum sviðum.
  • ÞNA veitir ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga.
  • ÞNA tekur þátt í þróunarverkefnum með samstarfsaðilum.
  • ÞNA veitir stuðning og ráðagjöf við uppbygginu þekkingarsetra og rannsóknastarfs

Þekkingarnet Austurland rekur Háskólanámssetur FNA á Egilsstöðum samkvæmt sérstökum samningi við Menntamálaráðuneytið. Auk þess tekur ÞNA þátt í rekstri námsvera á nokkrum stöðum á Austurlandi í samstarfi við framhaldsskóla og sveitarfélög.

Þekkingarnet Austurlands er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana á Austurlandi.

Þekkinganet Austurlands kynnir, miðlar og skipuleggur nám sem einstaklingar og fyrirtæki í fjórðungnum kunna að þurfa og óska eftir hverju sinni. Það leggur á ráðin með faghópum ýmis konar sem vilja bæta við þekkingu sína, um lengra eða styttra nám, útbýr sérvalin námskeið eftir óskum og sér um undirbúning þeirra s.s. útvegun kennara, húsnæðis o.fl . Þekkingarnet Austurlands kemur á framfæri óskum íbúa Austurlands við samstarfsaðila sína og getur einnig haft frumkvæði að námsframboði.

Þekkingarnet Austurlands stuðalar að kynningu á rannsóknastarfi og fræðimönnum, aðstoðar þekkingarsetur við uppbygginu á aðstöðu til rannsókna og stuðar að samvinnu fræðimanna á svæðinu og auknu rannsóknastarfi.

 
Þekkingarnet Austurlands - Tjarnarbraut 39e - 700 Egilsstaðir - Sími: 470-3800 - Netfang: tna@tna.is